Einn leikur fer fram í Dominos deild kvenna í dag þegar Snæfell fær Skallagrím í heimsókn í Vesturlandsslag dagsins. Skallagrímur hefur verið á mikilli siglingu uppá síðkastið og er í fínum möguleika að stela úrslitakeppnissæti af Stjörnunni á lokasprettinum. Snæfell tapaði í síðustu umferð gegn Keflavík en hafa verið sterkar á heimavelli í vetur.
Í 1. deild kvenna dregur ansi hreint til tíðinda í dag. Í DHL-höllinni er Reykjavíkurslagur KR og ÍR en KR er búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn og mun lyfta honum að leik loknum. ÍR þarf á sigri að halda til að nálgast úrslitakeppnina en KR er enn ósigrað í deildinni. Þá mætir Hamar Fjölni í Hveragerði í dag.
Fjallað verður um leiki dagsins á Karfan.is síðar í dag.
Leikir dagsins:
Dominos deild kvenna:
Snæfell – Skallagrímur – kl. 15:00
1. deild kvenna:
Hamar – Fjölnir – kl. 16:30
KR – ÍR – kl. 16:30




