HomeFréttirKR of stór biti fyrir Þór

KR of stór biti fyrir Þór

 

Gangur leiks:

15-25 / 6-20 / 21-18 / 11-14

 

Fyrirfram var nokkuð ljóst að Þór þyrfti að eiga toppleik til þess að ná að stríða toppliðinu í kvöld ekki síst í ljósi þess að liðið lék án þeirra Helgu Rutar og Ernu Rún og munar um minna. Og ekki var það til að hjálpa að hittni KR í fyrsta leikhluta var með eindæmum og settu þær niður hvorki meira né minna en  fimm þrista. Af þessum fimm þristum setti Perla niður þrjá.

 

Þórsliðið spilaði í sjálfu sér ekki illa í fyrsta leikhlutanum, en KR ingar brilleruðu og unnu fjórðunginn 15-25.

 

Segja má að allt hafi gengið á aftur fótunum hjá Þór í öðrum leikhluta og náði liði ekki að skora fyrr en eftir nærri fjögurra mínútna leik en þá var staðan orðin 17-33. Og það sem verra var að liðið náði ekki að skora nema fjögur stig það sem eftir lifði leikhlutans en gestirnir bættu við 12 stigum og unnu leikhlutann 6-20. KR ingar leiddu með 24 stigum í hálfleik 21-45.

 

Í fyrri hálfleiknum virtist sjálfstraust Þórs vera fjarri eða að liðið hafi borið full mikla virðingu fyrir toppliðinu.

 

Allt annað var að sjá til Þórs í þriðja leikhluta. Leikmenn þéttu vörnina og sóknarleikurinn gekk betur og sjálfstrausti loks á réttri leið. Þór tókst af og til að minnka muninn í 15 stig en þá bættu gestirnir í. Þór vann leikhlutann með þremur stigum 21-18 og munurinn á liðunum 21 stig þegar lokakaflinn hófst 42-63.

 

Heilt á litið var fjórði leikhlutinn illa leikinn af báðum liðum. Mikil barátta þar sem leikmenn ætluðu  sér oftar en ekki meira en þeir réðu við og þar af leiðandi mikið um mislukkaðar sendingar og hittni afleit. Gestirnir unnu leikhlutann 11-14 og 24 stiga sigur 53-77. Sanngjarn sigur.

 

Hjá Þór var Heiða Hlín stigahæst með 16 stig og 13 fráköst, Unnur Lára var með 15 stig 11 fráköst og 4 stoðsendingar. Rut Herner var með 14 stig og 10 fráköst, Hrefna 6 stig og Kristín Halla 2.

 

Hjá KR voru þær Unnur Tara og Perla allt í öllu og skoruðu þær stöllur samanlagt meira en allt Þórsliðið. Unnur Tara skoraði 29 stig og var með 9 fráköst, Perla 26 stig 6 fráköst og 5 stoðsendingar. Eygló Kristín 9 stig og 12 fráköst, Þorbjörg Andrea 8 stig 6 fráköst og 6 stoðsendingar, Alexandra Petersen 3 sig og Ástrós Lena 2 stig.

 

Eftir leik kvöldsins er KR sem fyrr á toppnum með 44 stig og Þór í þriðja sætinu með 28 stig.

 

Tölfræði leiks

Staðan í deildinni

 

Umfjöllun, mynd / Páll Jóhannesson

Fréttir
- Auglýsing -