spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaKR kveðjur Jón Arnór: „Ég verð alltaf KR-ingur“

KR kveðjur Jón Arnór: „Ég verð alltaf KR-ingur“

Líkt og Karfan greindi fyrst miðla frá í gærkvöldi mun Jón Arnór Stefánsson leika með liði Vals á næstu leiktíð. Jón hefur eingöngu leikið með liði KR á Íslandi og því um nokkuð óvæntar fregnir að ræða. Hann er uppalinn hjá liðinu og verið stór hluti af mögnuðum árangri liðsins síðustu ár.

KR greindi frá því í morgun að Jón Arnór væri á útleið og þakkaði honum fyrir sitt framlag í leiðinni þar stendur: „Körfuknattleiksdeild KR þakkar Jóni Arnóri fyrir frábært samstarf sem leikmaður og einn af leiðtogum liðsins undanfarin ár. Jón Arnór er frábær liðsmaður og mikill KR-ingur, og hefur skilað ómetanlegu framlagi til KR-liðsins í gegnum árin.“

Í tilkynningu KR sendir Jón Arnór skilaboð til KRinga auk þess sem Böðvar Guðjónsson formaður körfuknattleiksdeildarinnar þakkar Jóni fyrir.

Jón Arnór Stefánsson:
”Það er ótrúlega sérstakt að kveðja KR í bili, enda alinn upp hérna, en mér fannst einfaldlega vera kominn tími á nýjar áskoranir. Ég fann að ef ég myndi halda áfram í körfubolta þá þyrfti ég að fara í nýtt umhverfi og ögra mér aðeins. Ég verð alltaf KR-ingur og það breytist ekkert, og það verður pottþétt skrýtið að spila í DHL-höllinni á næsta tímabili í annari treyju en KR treyjunni.“

Böðvar Guðjónsson, formaður KKD KR:
“Framlag Jóns Arnórs til KR-liðsins undanfarin ár og í gegnum tíðina þekkja allir. Við skiljum að stundum vill fólk breyta til og við KR-ingar eigum eftir að sakna hans en óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi. KR-liðið stendur nú á ákveðnum tímamótum og kynslóðaskipti eru í liðinu. Eftir frábæran árangur undanfarin ár, þar sem Jón Arnór hefur verið í lykilhlutverki, er komið að yngri leikmönnum að leiða liðið en það er sem fyrr skipað mjög öflugum kjarna af uppöldum KR-ingum sem munu gera atlögu að öllum titlum.”

Nánar má lesa um félagaskipti Jóns Arnórs hér.

Fréttir
- Auglýsing -