HomeFréttirKR kláraði KFÍ á endanum (Umfjöllun)

KR kláraði KFÍ á endanum (Umfjöllun)

 
KR hélt heimavellinum ósigruðum með 14 stiga sigri á KFÍ í DHL höllinni í kvöld. Leikurinn var jafn allan tíman og skiptust liðin á að leiða leikinn. KR sigldi þó fram úr á lokasprettinum og bæði lið skiptu mönnum inn af bekknum seinustu mínúturnar. Sitgahæstur í liði KR var Marcus Walker með 30 stig en næstir voru Brynjar Þór Björsson með 17 stig og Finnur Magnússon með 16 stig og 11 fráköst.
Heimamenn sýndu það strax á fyrstu mínútunum að þeir voru mættir til leiks. Þeir keyrðu mjög hratt á KFÍ og tókst að stela boltanum nokkrum sinnum sem skilaði þeim auðveldum sniðskotum. Marcus Walker fór þar fyrir KR liðinu og var kominn með 7 stig eftir 3 mínútur. Þegar leikhlutinn var hálfnaður höðfu KR-ingar náð 8 stiga forksoti, 16-8. KFÍ tókst smám saman að loka á hraðar sóknir heimamanna og höfðu minnkað muninn niður í 3 stig þegar rúmlega þrjár mínútur voru eftir af leikhlutanum, 19-16. KR hafði 4 stiga forskot þegar fyrsta leikhluta var lokið, 26-22. KR liðið róteraði mjög mikið en það var enginn af þeim sem byrjaði leikinn fyrir KR sem var inná þegar fyrsta leikhluta lauk. Marcus Walker fór á kostum í fyrsta leikhluta og skoraði heil 15 stig, þar af þrjá þrista og nokkur hraðaupphlaup.
 
KFÍ komst yfir í fyrsta skiptið í leiknum þegar ca. 2 minútur voru liðnar af öðrum leikhluta, 28-29. KR spilaði mjög djúpt á bekkinn og voru einu mennirnir sem ekki höfðu komið við sögu þá hjá KR landsliðsmennirnir Pavel Ermolinskij og Fannar Ólafsson. Gestirnir tóku frumkvæðið þegar leið á leikhlutan en KFÍ náði mest 6 stiga forskoti, 33-39, sem þeim tókst að halda að mestu leiti þar til loka annars leikhluta. KFÍ voru mjög aggressívir í fráköstin og uppskáru oftar en ekki tvær til þrjár tilraunir í hverri sókn. Þegar flautað var til hálfleiks höfðu gestirnir náð 8 stiga forskoti, 47-55 en lokatilraun KR geigaði á lokasekúndum fyrri hálfleiks.
 
Stigahæstur í liði gestana í hálfleik var Marco Milicevic með 13 stig en næstir voru Craig Schoen með 12 stig og Nebosja Knezevic með 9 stig. Hjá KR bar Marcus Walker af með 19 stig en næstir voru Hreggviður Magnússon með 9 stig og Jón Orri Kristjánsson með 8 stig.
 
KR byrjaði seinni hálfleik eins og það byrjaði þann fyrsta. Eftir rúmlega mínútu af leik hafði KR minnkað muninn niður í 1 stig, 54-55. Heimamenn voru að spila sterkan varnarleik sem skilaði þeim ríkulega á hinum enda vallarins. KR komst yfir í stöðunni 57-55 en þá tóku gestirnir við sér og fóru að svara flottum leik heimamanna í sömu mynt. KFÍ fóru þó illa að ráði sínu þegar leið á leikhlutan og voru að brjóta mikið. Þegar leikhlutinn var hálfnaður voru þeir farnir að senda KR á línuna við hverja villu sem kostaði þá töluvert. Heimamenn kveiktu svo allhressilega í stuðningsmönnum sínum undir lok leikhlutans þegar þeir skoruðu 9 stig gegn 0 stigum KFí á tveggja mínútna kafla og höfðu náð 7 stiga forskoti þegar mínúta var eftir af leikhlutanum, 77-70. KFí áttu seinustu stig þriðja leikhluta og minnkuðu muninn niður í 4 stig, 77-73 þegar einn leikhluti var eftir.
 
KR gaf ekkert eftir í fjórða leikhluta og höfðu náð forskotinu upp í 10 stig þegar ca. 3 mínútur voru liðnar af leikhlutanum, 85-75. KFÍ tóku sitt annað leikhlé í seinni hálfleik þegar 6 mínútur voru eftir af leiknum. KFÍ voru komnir í bullandi villuvandræði þegar fjórði leikhluti var hálfnaður en þá höfðu þeir mist bæði Darco Milosevic og Craig Schoen útaf með 5 villur. Útlitið var því orðið ansi svart fyrir gestina. KR sigldi því lignan sjó til loka leiks þar sem þeir inbyrgðu 14 stiga sigur, 100-86. Það er athyglisvert að enginn íslenskur leikmaður kom við sögu hjá KFÍ fyrr en 1:21 var eftir af leiknum. Það var Guðni Páll Guðnason en Ari Gylfason sat heima veikur og gat því ekki spilað í kvöld.
 
Heildarskor:
 
KR: Marcus Walker 30/4 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 17/5 fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot, Finnur Atli Magnússon 16/11 fráköst/3 varin skot, Hreggviður Magnússon 16/8 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 12/7 fráköst, Ólafur Már Ægisson 4, Matthías Orri Sigurðarson 3, Skarphéðinn Freyr Ingason 2/5 fráköst/5 stoðsendingar, Fannar Ólafsson 0, Pavel Ermolinskij 0, Páll Fannar Helgason 0, Ágúst Angantýsson 0.
 
KFÍ: Marco Milicevic 27/8 fráköst/3 varin skot, Craig Schoen 17/7 stoðsendingar, Pance Ilievski 13, Nebojsa Knezevic 12/13 fráköst, Carl Josey 8/7 fráköst, Darco Milosevic 6/5 fráköst, Richard McNutt 2/6 fráköst, Guðni Páll Guðnason 1, Sævar Vignisson 0, Leó Sigurðsson 0, Jón Kristinn Sævarsson 0, Ingvar Bjarni Viktorsson 0.
 
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson, Jakob Árni Ísleifsson
 
Mynd/ Tomasz Kolodziejski: Marcus Walker setti 30 stig á KFÍ í kvöld.
 
Umfjöllun: Gísli Ólafsson
Fréttir
- Auglýsing -