spot_img
HomeFréttirKR Íslandsmeistarar í neðri deild 9. flokks drengja - Einar Marteinn maður...

KR Íslandsmeistarar í neðri deild 9. flokks drengja – Einar Marteinn maður úrslitaleiksins

KR B urðu í dag Íslandsmeistarar í neðri deild 9. flokks drengja eftir sigur á Skallagím í úrslitaleik. Lengi framan af leik leiddi KR, með 11 stigum er mest lét. Skallagrímur náði þó að gera þetta að leik undir lokin og komast yfir. Þá setti KR fótinn aftur á bensíngjöfina og sigldi að lokum 55-52 sigur í höfn í miklum spennuleik.

Hérna er myndasafn dagsins frá Körfunni / Bára Dröfn

Hérna er myndasafn KKÍ

Hérna er tölfræði leiksins

Einar Marteinn var valinn maður úrslitaleiksins

Maður leiksins var valinn Einar Marteinn Ólafsson, en hann skilaði 15 stigum og 7 fráköstum. Hjá Skallagrím var það Guðjón Gunnarsson sem var atkvæðamestur með 19 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar.

Myndir / KKÍ & Bára Dröfn

Fréttir
- Auglýsing -