HomeFréttirKR hefur leikið fleiri oddaleiki í Iceland Express deildinni

KR hefur leikið fleiri oddaleiki í Iceland Express deildinni

 
Annað kvöld fer fram oddaviðureign KR og Snæfells í Iceland Express deild karla. Töluverð spenna ríkir fyrir leiknum enda staðan 2-2 þar sem liðin hafa unnið sína leiki í einvíginu á útivelli. Gera má ráð fyrir kjaftfullri DHL-Höll á morgun svo ráð er að mæta tímanlega áður en uppselt verður í húsið. Karfan.is kíkti á oddaleikina sem liðin hafa spilað í úrvalsdeild síðan hún tók á sig nafnið Iceland Express deildin.
Á samantektinni má sjá að Vesturbæingar hafa leikið fleiri oddaleiki í Iceland Express deildinni, alls fimm talsins með fjóra sigra. Hólmarar hafa leikið þrjá oddaleiki með einn sigur og tvo tapleiki. Báðir tapleikir Snæfells í Iceland Express deildinni hafa einmitt verið gegn KR en tapleikur Vesturbæinga kom gegn ÍR.
 
Í ár komust bæði Snæfell og KR klakklaust í gegnum 8-liða úrslitin. KR tók ÍR 2-0 og slíkt hið sama gerði Snæfell í rimmunni gegn Grindvíkingum. Undanfarið hafa menn klórað sér í hausnum þegar talið berst að heimavöllum en í yfirstandandi undanúrslitaeinvígi hefur hvorki KR né Snæfell tekist að vinna heimaleik.
 
Sjá oddaleiki liðanna í Iceland Express deild karla hér að neðan:
 
Oddaleikir Snæfells í úrslitakeppni Iceland Express deildar karla:
2009: Snæfell 73-71 Stjarnan – oddaleikur í 8-liða úrslitum (1 sigur – 0 tap)
2008: Léku engan oddaleik
2007: KR 76-74 Snæfell – oddaleikur í undanúrslitum ( 1 sigur – 1 tap)
2006: KR 67-64 Snæfell – oddaleikur í 8-liða úrslitum (1 sigur – 2 töp)
 
Oddaleikir KR í úrslitakeppni Iceland Express deildar karla:
2009: KR 84-83 Grindavík – oddaleikur í úrslitaeinvígi (1 sigur – 0 tap)
2008: KR 74-93 ÍR – oddaleikur í 8-liða úrslitum (1 sigur – 1 tap)
2007: KR 91-78 ÍR – oddaleikur í 8-liða úrslitum (2 sigrar – 1 tap)
2007: KR 76-74 Snæfell – oddaleikur í undanúrslitum (3 sigrar – 1 tap)
2006: KR 67-64 Snæfell – oddaleikur í 8-liða úrslitum (4 sigrar – 1 tap)
 
KR-Snæfell
Oddaleikur
DHL-Höllin kl. 19:15
15. apríl
 
Fréttir
- Auglýsing -