spot_img
HomeFréttirKR - Fjölnir opnunarleikur Iceland Expressdeildar karla

KR – Fjölnir opnunarleikur Iceland Expressdeildar karla

10:35 

{mosimage}

 

 

(Brynjar Björnsson verður í eldlínunni í kvöld) 

 

Íslandsmótið í Iceland Expressdeild karla verður sett í DHL-Höllinni í kvöld, fimmtudaginn 11. október, klukkan 19:15.  KR-ingar taka á móti Fjölnismönnum á nýju parketi og í nýjum búningum.  

 

Nýja parketið er stórglæsilegt frá Parket og Gólf en leikmenn dásama breytingarnar eftir sumarið og stuðningsmenn bíða spenntir eftir að Íslandsmótið hefjist, miðjan mun mæta á sinn fyrsta leik eftir sumarið og verður gaman að fylgjast með strákunum.  

KR-ingar opna KRTV í leiknum og senda frá sér í fyrsta skipti beint, eitthvað sem fleiri félög taka vonandi upp, Jakob og Guðjón hjá KFÍ fá sérstakar þakkir frá KR-ingum þar sem Jakob var sérlega hjálpsamur við uppsetningu á KRTV.  

KR-ingar mæta til leiks án fyrirliðans Fannars Ólafssonar sem og Snorra Páls Sigurðssonar en báðir eru þeir frá vegna meiðsla, Helgi Már Magnússon og Darri Hilmarsson æfðu ekki í gær og er óvíst um hvort þeir leiki í kvöld. Nýji leikmaðurinn sem er hjá KR til reynslu Avi Fogel gæti leikið í kvöld. KR-ingar mæta með gríðarlega breytt lið frá því í vor, farnir eru þeir Tyson Patterson, JJ Sola, Edomnd Azemi, Bjarki Oddsson, Steinar Kaldal, Hafþór Björnsson, en Heiðar Lind Hansson er meiddur.  Komnir til KR eru þeir Helgi Már Magnússon frá Sviss, Jovan Zedravevski frá Skallagrím, Joshua Helm frá USA lék síðast í Hollandi, Ernestas Ezerskis frá Rhytas í Litháen, Avi Fogel frá USA, Eld Ólafsson frá Hamar og Pál Fannar Helgason frá Val.  

Hjá Fjölnismönnum hafa orðið breytingar í kanamálum, David Fanning fór heim en í staðinn er kominn Karlton Mims. Fjölnismenn sem spáð er falli eru langt frá því að vera sáttir við þá spá og munu koma grimmir til leiks á morgun, þeir hafa misst Árna Ragnarsson, Kareem Johnson og Hörð Axel Vilhjálmsson, en í staðinn hafa þeir fengið Kristinn Jónasson úr Haukum, Sindra Kárason frá USA, Karlton Mims og Drago Pavlovic.  

Leikurinn hefst klukkan 19:15 í DHL-Höllinni og er fólk hvatt til að fjölmenna.  Fyrsta umferðin og boltinn í allan vetur á eftir að verða skemmtilegur og jafn, við skulum skoða fyrstu umferðina en um hörkuleiki er að ræða:  

Fimmtudaginn 11. október mætast klukkan 19:15:

KR og Fjölnir                DHL-Höllinni

Hamar – Tindastóll       Hveragerði

UMFN – Snæfell           Íþr.hús Njarðvíkur

Þór Ak. – ÍR                 Síðuskóli  

Föstudaginn 12. október mætast klukkan 19:15

Stjarnan – Skallagrímur  Ásgarði

Keflavík – Grindavík    Íþr.hús Keflavíkur

 

www.kr.is/karfa

Fréttir
- Auglýsing -