HomeFréttirKR áfram í bikarkeppni unglingaflokks

KR áfram í bikarkeppni unglingaflokks

Breiðablik tók á móti KR í bikarkeppni unglingaflokks karla í kvöld en leikið var í Smáranum í Kópavogi og búist við miklum slag enda þurfti að tvíframlengja hjá liðunum í Íslandsmótinu þegar þau mættust í DHL-Höllinni fyrr á tímabilinu. Í þeim leik hafði Breiðablik betur en KR kvittaði fyrir það tap í kvöld með sterkum 76-83 sigri.
Þorgrímur Guðni Björnsson lokaði fyrri hálfleik fyrir Blika með þriggja stiga körfu og leiddu grænir 44-41 að honum loknum.
 
Í þriðja leikhluta gekk nokkuð erfiðlega að skora hjá báðum liðum en KR-ingar voru sprækari og unnu leikhlutann 11-17 og leiddu því 55-58 fyrir fjórða og síðasta leikhluta eftir að Martin Hermannsson hafði skorað og fengið villu að auki fyrir KR á lokasekúndum þriðja leikhluta.
 
Blikar náðu 62-60 forystu um miðjan fjórða leikhluta en þá höfðu gestirnir úr vesturbænum aðeins náð að skora tvö stig. Hægt og bítandi lifnaði yfir sóknarleik gestanna sem komust í 67-74 eftir þriggja stiga körfu frá Martin Hermannssyni þegar 1.40mín. voru til leiksloka.
 
Breiðablik náði að minnka muninn af harðfylgi í 72-74 en misstu KR frá sér á nýjan leik eftir að hafa fengið dæmt á sig tæknivíti þegar 44 sekúndur voru til leiksloka. KR hélt spilunum þétt að sér og kláruðu svo leikinn 76-83 í miklum slag.
 
Martin Hermannsson gerði 28 stig í liði KR og leiddi liðið í gegnum þyngstu kaflana og Kristófer Acox bætti svo við 15 stigum. Hjá Breiðablik var Ágúst Orrason með 24 stig og Snorri Hrafnkelsson bætti við 16 og þá átti Þorgrímur Guðni Björnsson góða spretti.
 
Blikar eru því úr leik og KR komnir áfram í bikarnum.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -