spot_img
HomeFréttirKörfuboltafjölskyldan kynnt til leiks

Körfuboltafjölskyldan kynnt til leiks

Hópur þrjátíu fyrrum körfuknattleiksmanna sem á meðal eru landsliðsmenn fyrrverandi, þjálfarar og forystumenn stóðu að fundi 16. september síðastliðinn til að ræða hvernig afla megi fjár til að styðja við þátttöku íslenska karlalandsliðsins í lokakeppni Evrópumeistaramótsins í körfuknattleik 2015. Hér að neðan fer tilkynning um málið sem birtist áðan á heimasíðu KKÍ.
 
 
Tilkynning af heimasíðu KKÍ:

Frá framkvæmdanefnd Körfuboltafjölskyldunnar vegna Evrópumótsins í körfuknattleik í september 2015.
 
Það þarf einbeittan vilja og getu til að komast áfram úr undankeppni karlalandsliða Evrópu í körfuknattleik. Landsliðinu okkar tókst það í fyrsta sinn í sögu íslensks körfuknattleiks með frábærum leik sínum fyrir fullu húsi áhorfenda í Laugardalshöllinni. Breyttir tímar og ný viðhorf – ný tækifæri blasa við.
 
VILTU VERA MEÐ?
Nú þurfum við – körfuboltafjölskyldan – að sýna og sanna að við mætum öll til leiks með því að styðja við landsliðið okkar með myndarlegum fjárhagslegum stuðningi. Ef við gerum það ekki verða fáir til þess – ef við gerum það myndarlega munu margir fylgja okkar fordæmi!
 
Hópur 30 fyrrum körfuknattleiksmanna, landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn íslensks körfuknattleiks stóðu að fundi 16. september til að ræða hvernig afla megi 6–7 milljónum króna meðal okkar til að styðja við þátttöku okkar stráka í keppninni.
 
Með því að afla stuðningsmanna sem vilja skuldbinda sig í 10 mánuði til að greiða 2.000–5.000 kr. á mánuði með greiðslukorti eða greiðsluseðlum getum við með sameiginlegu átaki náð ofangreindu takmarki. Þessara stuðningsmanna þarf að afla á næstu 3-4 vikum og hyggst hópurinn styðja við átakið með góðri kynningu í fjölmiðlum til þess að ná til fleiri landsmanna sem vilja leggja okkur lið.
 
Meðfylgjandi er eyðublað til fjölfjöldunar og dreifingar innan vébanda félags þíns þar sem stuðningsaðilar fylla út umbeðnar upplýsingar. Áhersla er á að ná til einstaklinga og einnig þeirra sem eftir atvikum geta látið fyrirtæki í sinni eigu standa straum að greiðslum. Að öðru leyti skal ekki leitað til fyrirtækja þar sem við viljum ekki trufla fjáraflanir félaganna okkar.
 
KKÍ mun bjóða einum aðila úr hópi þessara styrktaraðila fría ferð og gistingu á mótið.
 
TÖKUM NÚ STRAX MYNDARLEGA Á ÞVÍ AÐ SAFNA UNDIRSKRIFTUM OG STYÐJA VÐ STRÁKANA OKKAR Á EM.
 
STUÐNINGUR OKKAR VERÐUR ÞEIM MIKIL HVATNING!
 
Nánari upplýsingar gefa eftirtaldir aðilar:
Einar Bollason 860-7000 · [email protected]
Kolbeinn Pálsson 821-1433 · [email protected]
Gunnar Gunnarsson 892-6274 · [email protected]
Helgi Ágústsson · [email protected]
Jón Otti Ólafsson · [email protected]
Hannes S. Jónsson formaður KKÍ 698-7574 · [email protected]
 
Einnig er hægt að senda póst á [email protected]
 
Framkvæmdanefnd.
 
 
Ljósmynd/ Axel Finnur
Fréttir
- Auglýsing -