Brynjar Þór Björnsson fyrirliði Íslandsmeistara KR og leikmaður íslenska landsliðsins verður með Körfuboltabúðir í dymbilvikunni er grunnskólar landsins eru í páskafríi. Körfuboltabúðirnar fara fram dagana 26, 27, og 28. mars næstkomandi þegar grunnskólar höfuðborgarsvæðisins eru í páskafríi. Búðirnar eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9-16 ára og eru alhliða körfuboltabúðir. Æfingatímarnir eru frá 9-12 og búðirnar fara fram í KR-heimilinu.
Brynjar Þór hefur verið að bjóða upp á morgunæfingar síðustu vetra fyrir krakka sem langar að bæta sig ásamt því að bjóða upp á hádegistíma fyrir áhugamenn um körfubolta. Hann hefur einnig boðið uppá skotbúðir og körfuboltabúðir fyrir fólk á öllum aldri og því miklar líkur á að það verði tekin nokkur skot. Hafa móttökurnar verið frábærar og er greinilegt að ungir jafnt sem aldnir eru ólmir í að komast í körfubolta.
Verðið er 9000 kr fyrir allt námskeiðið, skráningin fer fram hér og á [email protected].
Allar frekari upplýsingar um tímasetningu, verð og skráningu er að finna hér fyrir neðan og á facebook.





