Hér á Karfan.is höfum við spurt síðustu vikuna hverjir lesendur telji að verði Powerademeistarar í kvennaflokki og voru rúmlega 300 þátttakendur í könnuninni. Flestir eða 47% aðspurðra tippuðu á að Njarðvíkingar myndu hafa sigur.
Spurt var: Hver verður Poweradebikarmeistari kvenna 2012?
Niðurstöður:
Njarðvík 47%
Snæfell 23%
Haukar 19%
Stjarnan 11%
Nú er komin inn ný könnun og spyrjum við:
Hver verður Poweradebikarmeistari karla 2012?
KR
Keflavík
Tindastóll
KFÍ



