HomeFréttirKobe heitur gegn Suns: Warriors lögðu Heat í framlengdum leik

Kobe heitur gegn Suns: Warriors lögðu Heat í framlengdum leik

Í nótt fóru ellefu leikir fram í NBA deildinni þar sem LA Lakers með Kobe Bryant fremstan í flokki skelltu Phoenix í Staples Center og Golden State Warriors áttu magnaða endurkomu gegn Miami Heat og höfðu að lokum sigur í framlengdum leik. Þá vann Washington sinn fyrsta deildarleik í nótt þegar liðið skellti Toronto.
LA Lakers 99-83 Phoenix Suns
Kobe Bryant gerði 48 stig í leiknum fyrir Lakers og tók 5 fráköst. Bryant brenndi af öllum þremur þristunum sínum í leiknum en skellti niður 12 af 13 vítum og var 18/31 í teignum. Næstur Kobe var Pau Gasol með 16 stig og 12 fráköst. Hjá Suns var Channing Frye atkvæðamestur með 17 stig og Steve Nash gerði 13 stig og gaf 8 stoðsendingar.
 
Golden State Warriors 111-106 Miami Heat
Fjórir leikmenn Golden State gerðu 20 stig eða meira í leiknum en þeirra atkvæðamestur var Nate Robinson með 24 stig. Hjá Miami var Dwyane Wade stigahæstur með 34 stig og 6 fráköst og LeBron James daðraði við þrennuna með 26 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar. Framlengt var í stöðunni 96-96 þar sem Warriors áttu möguleika á lokaskoti en náðu því ekki áður en tíminn rann út. Í framlengingunni reyndust Warriors sterkari og þegar um 5 sekúnur voru til leiksloka reyndi LeBron að jafna fyrir Heat í stöðunni 109-106 með erfiðum þristi en hann geigaði, Warriors tóku frákastið og smelltu niður tveimur vítum til að innsigla sigurinn.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Philadelphia 112-85 Sacramento
Washington 93-78 Toronto (fyrsti sigur Washington í deildinni)
Charlotte 70-82 Houston
Detroit 86-100 Dallas
Milwaukee 106-103 San Antonio
Memphis 95-100 Oklahoma
Minnesota 100-111 Chicago
Utha 113-105 Cleveland
Portland 105-97 LA Clippers
 
Mynd/ Kobe Bryant fór á kostum í liði Lakers í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -