HomeFréttirKobe Bryant bætti Óskarsverðlaunastyttu í safnið í nótt

Kobe Bryant bætti Óskarsverðlaunastyttu í safnið í nótt

 

Fyrrum leikmaðurinn og verðandi heiðurshallarmeðlimurinn Kobe Bryant vann til Óskarsverðlauna í nótt fyrir bestu tölvugerðu stuttmynd sína Kæri Körfubolti (e. Dear Basketball)

 

Þann 29. nóvember árið 2015 skrifaði Bryant bréf með sama nafni í Players´ Tribune þar sem hann tilkynnti það að hann ætlaði að hætta að tímabili loknu. Myndin er gerð uppúr því bréfi, þar sem Bryant les bréfið, John Williams sér um tónlistina og Glen Keane setti saman hreyfimynd.

 

Aðrar myndir tilnefndar í flokknum voru Garden Party, Lou, Negative Space og Revolting Rhymes.

 

Hér fyrir neðan má sjá bæði þakkarræðu Bryant, en í henni segir hann að samkvæmt einhverjum eigi körfuboltamenn bara að halda kjafti og drippla, en hann sé ánægður að þeir geti gert meira en það.

 

 

 

Ræðan:

 

Myndin:

DEAR-BASKETBALL_FULL_H264 from Believe Entertainment Group on Vimeo.

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -