HomeFréttirKirilenko hefur sagt skilið við NBA

Kirilenko hefur sagt skilið við NBA

Andrei Kirilenko hefur fyrir fullt og allt sagt skilið við NBA deildina eftir 9 ár í deildinni til þess að spila með CSKA Moscow þar sem hann byrjaði tímabilið sökum verkbanns í NBA.  Andrei Kirilenko, einnig þekktur sem AK47, spilaði öll sín ár í NBA með Utah Jazz.  Þar skoraði hann að meðaltali 12,4 stig, hirti 5,8 fráköst og varði að meðaltali 2 skot á leik.  Kirilenko tókst aldrei að spila til úrslita í NBA deildinni en hann verður seint sakaður um að hafa ekki skilað sínu.  Á sínu besta tímabili með Utah skilaði hann 15,3 stigum á leik, 8 fráköstum, 3,2 varin skot , 4,3 stoðsendingar og 1,5 stolnum bolta.  
Kirilenko sagði við heimasíðu CSKA að "það væri óviðeigandi að hætta á miðri leið.  það væri ósanngjart gagnvart mínum liðsfélögum og enn mikilvægara, gagnvart stuðningsmönnunum.  Ég veit hve margir treysta á mig".  

Kirilenko spilar því það sem eftir lifir tímabils þar sem hann hóf það, með feiknarsterku liði CSKA Moscow sem hafa aðeins tapað einum leik á tímabilinu.  Liðið vann alla 10 leiki í fyrstu umferð Euroleague.  Í heimalandinu hefuru liðið unnið 7 leiki en tapað einum, gegn Khimky, sem stendur í öðru sæti í deildinni, 4 stigum á eftir CSKA Moscow.  

Kirilenko hefur spilað 3 leiki með CSKA á nýju ári og skorað í þeim 15 stig og er með stigahæstu mönnum í liðinu.  Hann var einnig valinn MVP októbermánðar í Euroleague.  

 

[email protected]

 

Fréttir
- Auglýsing -