spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaKinu farinn frá Hamri

Kinu farinn frá Hamri

Topplið 1. deildar karla, Hamar úr Hveragerði, hefur sagt upp samningi miðherjans Kinu Rochford, sem gekk til liðs við félagið fyrir yfirstandandi tímabil. Þetta staðfesti Maté Dalmay þjálfari liðsins í samtali við Körfuna fyrir skemmstu.

Kinu lék með Þór frá Þorlákshöfn við góðan orðstír á síðustu leiktíð, og gekk til liðs við Hamar í 1. deildinni fyrir yfirstandandi tímabil. Í fjórum leikjum skilaði Kinu tæpum 12 stigum og 9 fráköstum fyrir Hvergerðinga, en nú er ljóst að leiðir munu skilja.

Hamarsmenn sitja á toppi 1. deildar karla að loknum fimm umferðum, með fullt hús stiga.

Fréttir
- Auglýsing -