20:36
{mosimage}
Rob Hodgson þjálfari Vals þarf að lesa yfir hausamótunum á sínum mönnum
Fyrsta leik kvöldsins er nú lokið. Í Vodafonehöllinni vann KFÍ sigur á Valsmönnum 94-87 eftir framlengdan leik þar sem staðan var 84-84 eftir venjulegan leiktíma.
Þetta var fyrsta tap Vals í deildinni í vetur en KFÍ menn höfðu landað einum sigri áður, gegn Þrótti V.
Breiðablik vann Ármann/Þrótt 85-75 á heimavelli og er enn taplaust.
Í Iceland Express deild karla vann Snæfell baráttu sigur á Hamri í Hveragerði og hefur nú unnið tvo fyrstu leikina, lokatölur voru 70-77.
Síðustu fréttir úr Vogunum eru að FSu menn leiddu 42-39.
Meira síðar.
Mynd: Gísli Ólafsson – [email protected]