spot_img
HomeFréttirKevin Young ekki með Keflavík í vetur

Kevin Young ekki með Keflavík í vetur

 

Samkvæmt heimildum hefur Keflavík ákveðið að gera ekki samning við erlendan leikmann sinn, Kevin Young, fyrir komandi tímabil. Vegna reglna sem varða erlenda leikmenn, höfðu Keflavík þennan frest til þess að ákveða sig hvort samningur yrði gerður eða ekki. Enn er eitthvað í að tímabilið hefjist, en samkvæmt formanni deildarinnar, var Young ekki sá leikmaður sem liðið var að leita eftir. 

 

Ekki er komið á hreint hvaða leikmaður mun fylla í skarð Young hjá Keflavík í vetur.

 

Keflavík hefur leik í Dominos deildinni þann 5. október nætskomandi þegar þeir taka á móti nýliðum Vals í TM Höllinni.

 

Mynd: Young til hægri í leik gegn Anthony Davis og félögum í Kentucky í bandaríska háskólaboltanum.

Fréttir
- Auglýsing -