HomeFréttirKendall Pollard til liðs við KR

Kendall Pollard til liðs við KR

 

KR hefur komist að samkomulagi við Kendall Pollard um að leika með liðinu út tímabilið. Kendall er 23 ára kraftframherji sem útskrifaðist úr Dayton háskólanum við góðan orðstír í fyrra.

 

Fyrir var liðið með bandaríkjamanninn Brandon Penn hjá sér, en samkvæmt þjálfara liðsins munu þeir nota þá báða.

 

Frekari upplýsingar eru í frétt KR hér fyrir neðan.

 

Fréttir
- Auglýsing -