Mikið hefur verið og er að fara gerast hjá landsliði okkar íslendinga þetta árið. Fyrst voru það Smáþjóðaleikarnir, sem voru hér heima í byrjun júní. Þar sem að liðið náði öðru sæti. Næst er það hinsvegar lokamót Eurobasket í Berlín næsta haust. Við það tilefni fannst okkur kjörið að hafa uppi á nokkrum fyrrum landsliðsmönnum Íslands og fá að spyrja þá að nokkrum spurningum.
Sá fyrsti sem að við heyrðum í var enginn annar en körfuknattleiksmaður 20. aldarinnar (staðfest), Pétur Guðmundsson, en sjá má hans svör hér.
Næstur í röðinni er enginn annar en eins mans stórskotaliðið og Keflvíkingurinn Guðjón Skúlason, en meðfram því að safna titlum (bæði sem leikmaður og þjálfari) og gefa (meðal annarra) Sláturhúsinu nafnið sitt, spilaði kauði einnig eina 122 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Nafn: Guðjón Skúlason
Ferill: 1983 – 2006
Félagslið / tímabil: Keflavík 1983-1990, AUM University 1990-1992, Keflavík 1992-94, Grindavík 1994-95 og svo Keflavík aftur frá 1996 til 2006.
Landsliðsferill:
122 leikir, frá 1988-1999.
Spilaði upp öll yngri landslið og var þar einnig einhver hellingur af leikjum.
Hvernig var tilfinningin að vera valinn fyrst í landslið?
Frábær tilfinning, fannst náttúrulega að ég hefði átt að vera valinn mun fyrr, en svona er það bara stundum.
Hvernig var fyrsti leikur þinn fyrir Ísland?
Man ekki eftir fyrsta leiknum, en hann hefur örugglega verið góður af minni hálfu.
Var móðir þín viðstödd viðureignina?
Nei, það held ekki.
Hún hefur þó séð ótrúlega marga leiki á mínum ferli eins og öll fjölskyldan í raun.
Hver var eftirminnilegasti leikurinn sem þú lékst fyrir Ísland?
Sennilega er það leikur við Litháen í Vín (Austuríki) 1993 þar sem ég var með 9 þrista í 10 tilraunum og skoraði að mig minnir í heildina 32 stig.
Hver var sá besti leikmaður sem þú spilaðir með fyrir landsliðið og afhverju?
Þeir eru nú margir!
Teitur var alltaf mjög öflugur og gott að spila með honum.
Einnig margir góðir leikstjórnendur, Jón Kr, Falur og Jón Arnar svo einhverjir séu nefndir. Þeir eru skyttum mikilvægir. Þegar þeir settu mikið traust á mann voru þeir bestu menn á vallarins. Líka kannski þeir sem nenntu að setja “screen” sem voru vel notuð.
Spilaði aðeins eitt mót með Pétri Guðmunds í Danmörku og man alltaf eftir leikskilning hans. Þá var það þannig að ég hljóp á mína staði og fékk nánast alltaf boltann í topp skotstöðu. Hann var því eins og þeir sem ég nefndi hér að ofan, að spila sem virkilega fær leikstjórnandi.
Hversu ánægður varðst þú við það að fylgjast með landsliðinu tryggja sér sæti á sínu fyrstu lokum stórmóts?
Mjög ánægður. Frábær árangur hjá lítilli þjóð eins og Íslandi.
Jón Arnór kom inn með aukið traust til liðsins þegar það skipti máli, á lokametrunum.
Afhverju heldur þú að það hafi loksins tekist fyrir liðið að tryggja sér seðilinn á lokamót?
Allt small saman á réttum tíma. Þ.e. riðill, mótherjar sem og okkar lið, sem var búið að vinna vel í sínum málum. Þetta held ég að sé þó vinna margra einstaklinga í gegnum árin og þeir sem eru í liðinu í dag eru einfaldlega að uppskera í þágu allra þeirra sem hafa lagst, allir sem einn, á það að gera íslenska landsliðið gott.
Við eigum mjög öfluga leikmenn í dag. Ef allir framkvæma sitt hlutverk eins og til er ætlast samkvæmt skipulagi sem hentar liðinu þá er ég þess viss um að Ísland geti gert góða hluti.
Hvernig heldur þú að Íslandi eigi eftir að vegna í þessum sterka riðli sem þeir í drógust?
Ég geri mér ekki miklar vonir um frama okkur á þessu móti. Þetta er erfiður riðill og fyrsta mót. Býst hinsvegar við að leikmenn sýni sanna íslenska baráttu, gefist aldrei upp, nýti styrkleika sína og keyri á veikleika andstæðinganna.
Ef þú fengir að senda einn fyrrum leikmann Íslands með liðinu á Evrópumótið, hver væri það þá og hvernig myndi hann hjálpa liðinu?
Sennilega stóran mann eins og Pétur Guðmunds eða Magnús Matthías. Pétri þarf vart að færa rök fyrir en Magnús var líka ótrúlega góður á blokkinni og dró oft að sér tvo varnarmenn og þar með losaði hann um skyttur og var góður sendingamaður í að finna réttu mennina.
Hvert telur þú vera, fengir þú að velja lið allra tíma, byrjunarliðs uppstilling íslenska landsliðsins?
Það væri gaman að prófa þessa uppstillingu:
Jón Kr. Gíslason (ás), Guðjón Skúlason (tvistur), Jón Arnór Stefánsson (þristur), Valur Ingimundarson (fjarki) og Magnús Matthíasson (fimma).
Mjög sterkt sóknarlið, sem myndi einnig deyja hinumegin á vellinum í vörn fyrir Ísland.
Auðvitað ættu Teitur Örlygsson, Pétur Guðmundsson og Hlynur Bæringsson að vera þarna, en það er bara pláss fyrir fimm.
Heldur þú, að þú sjálfur sem leikmaður, upp á þitt besta, værir á leið með íslenska liðinu til Berlín næsta haust?
Já, engin spurning.
Hver væri/var þín helsta samkeppni og myndir þú taka hann/þá?
Myndi halda að það væri Falur Harðarson þó hann hafi verið leikstjórnandi. Því hann var mjög öflug skytta. Síðan var Herbert Arnarsson maður sem alltaf gat búið til skot og neglt því.
Hvaða ungi leikmaður, sem ekki hefur spilað áður fyrir landsliðið, myndir þú veðja á að ætti eftir að spila yfir 50 landsleiki í framtíðinni?
Þessi er of erfið til að svara.
Það kæmi mér hinsvegar ekki á óvart ef það yrði Kristinn Pálsson úr Njarðvík.
Hverja telur þú tvo mikilvægustu leikmenn íslenska liðsins í dag og af hverju?
Jón Arnór Stefánsson og Hlynur Bæringsson eru mikilvægastir fyrir liðið. Ásamt góðum leikstjórnanda. Sem ég hef reyndar ekki enn séð taka stjórn á liðinu undanfarna leiki. Þjálfarar þurfa að negla þá stöðu niður og fá þann aðila til að stýra hópnum á velli til þess að nýta þá bræður Jón og Hlyn sem best.
Á að bregða landi undir fót og fylgja liðinu til Berlín næsta vor?
Nei, því miður kemst ég ekki.
Mun reyna að fylgjast með á annan hátt eins vel og mögulegt er.





