Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Í Spectrum Center í Charlotte sigruðu heimamenn í Hornets lið Memphis Grizzlies með 61 stigi. Fyrir Hornets lék leikstjórnandinn Kemba Walker á alls oddi. Skoraði 46 stig á aðeins 27 mínútum spiluðum í leiknum. Fyrir gestina var það Tyreke Evans sem dróg vagninn með 16 stigum, 7 fráköstum og 4 stoðsendingum á 16 mínútum spiluðum. Brot úr leiknum má sjá hér fyrir neðan.
Memphis Grizzlies 79 – 140 Charlotte Hornets
Philadelphia 76ers 118 – 98 Orlando Magic
Detroit Pistons 96 – 100 Houston Rockets
Los Angeles Lakers 125 – 128 New Orleans Pelicans
Utah Jazz 119 – 112 Dallas Mavericks
Atlanta Hawks 90 – 105 Sacramento Kings



