15:44
{mosimage}
Damon Bailey verður líklega með Njarðvík í kvöld
Einn leikur fer fram í Iceland Express deild karla í kvöld klukkan 19:15 þegar Njarðvík tekur á móti Tindastóli. Bæði lið byrjðu mótið vel en aðeins hefur hallað á ógæfuhliðina undanfarið.
Damon Bailey verður væntanlega með liði Njarðvíkur í kvöld en hann kom til landsins í gær en nánari upphitun má lesa á heimasíðu Njarðvíkur.
Í kvöld fer einnig fram leikur í forkeppni Lýsingarbikarsins þegar Fjölnir b og Keflavík b eigast við í Rimaskóla klukkan 20. Það er athyglisverður leikur en lið Keflavíkur er skipað mörgum gömlum kempum sem skipuðu Keflavíkurhraðlestina á sínum tíma, spurning hversu hratt sú hraðlest fer í dag.
Auk þessa fara fram leikir í 2. deild karla og yngri flokkum og því um að gera að kíkja á körfubolta í kvöld.
Mynd: [email protected]