Valur tók á móti Keflavík í 16. liða úrslitum Subway bikarsins að Hlíðaraenda í dag. Keflvíkingar náðu afgerandi forskoti strax í fyrsta leikhluta leiksins og leiddu mest með 20 stigum í öðrum leikhluta. Valsmenn gáfust þó ekki upp og náðu smám saman að minnka muninn þar til undir lok leiksins þegar það munaði minnst 8 stigum á liðunum. Nær komust þeir þó ekki og unnu Keflvíkingar því sanngjarnan og í raun nokkuð öruggan sigur á 1. deildar liði Vals, 90-100.
Keflvíkingar spiluðu stærstan hluta leiksins á minni spámönnum sem hafði mikil áhrif á framvindun leiksins. Stigahæstur í liði Keflvíkinga voru nafnarnii Gunnar Einarsson og Gunnar Stefánsson með 16 stig hvor en þar á eftir var Hörður Axel Vilhjálmsson með 15 stig. Í liði Vals var Byron Davis með 22 stig en næstir voru Hörður Hreiðarsson með 17 stig og Guðmundiur Ásgeirsson með 12 stig.
Keflavík sýndi styrk sinn strax á upphafsmínútum og voru ekki lengi að ná forskotinu. Gestirnir voru duglegir að pressa boltan um leið og hann kom í leik hjá Valsmönnum og uppskáru samkvæmt því. Þegar um það bil sjö mínútur voru liðnar af leikhlutanum höfðu gestirnir náð 13 stiga forskoti, 13-26. Heimamenn misstu þá þó ekki lengra frá sér en það í fyrsta leikhluta en Keflavík leiddi, 21-33 þegar flautað var til loka leikhlutans.
Guðjón Skúlason var duglegur að gefa yngri leikmönnum tækifæri í leiknum og strax í upphafi annars leikhluta var liðið meira og minna skipað af yngri og óreyndari leikmönnum. Það virtist þó ekki breyta miklu fyrir gestina sem héldu forskotinu með flottum sóknarleik. Þegar fjórar mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta höfðu gestirnir 12 stiga forskot, 28-40, sem sýnir hversu öflugur sóknarleikur Keflavíkur var. Valsmenn tóku leikhlé þegar leikhlutinn var rúmlega hálfnaður og heimamenn búnir að fara illa með mörg góð tækifæri í sókninni. Það fór ekki á milli mála hjá þeim nokkru áhorfendum að hlíðarenda að Yngvi Gunnlaugsson var ekki ánægður með leik sinna manna. Það leið því ekki að löngu þar til forskot Keflavíkur var komið upp í 18 stig, 36-54. Áður en flautað var til hálfleiks náðu heimamenn ölrítið að retta sinn hlut en þó ekki meir en svo að Keflavík leiddi með 15 stigum, 44-59.
Stigahæstur í liði gestana í hálfleik var Gunnar Einarsson með 13 stig en næstir voru Gunnar Stefánsson með 10 stig og Hörður Axel Vilhjálmsson með 9 stig. Í liði Vals var Byron Davis stigahæstur með 13 stig en næstir voru Guðmundur Ásgeirsson með 11 stig og Hörður Hreiðarsson með 7 stig.
Keflavík mætti mun sterkari til leiks í seinni hálfleik og skoruðu fyrstu 8 stig leikhlutans á rétt rúmum tveimur mínútum. Þegar leikhlutinn var hálfnaður höfðu Valsmenn tekist að koma sér á blað sem dugði þó ekki meira en svo að munurinn á liðunum var orðinn 20 stig, 51-71. Liðin skiptust á að skora það sem eftir lifði leikhlutans en þó virtust heimamenn smám saman vera að saxa á forskot gestana. Keflvíkingar voru hins vegar ekki lengi að ná forskotinu aftur, sem var minnst um það bil fimmtán sitg í leikhlutanum. Almar Guðbrandsson skoraði nokkuð laglega flautukörfu þegar þriðja leikhluta lauk og munaði því 18 stigum á liðunum, 67-85.
Valsmenn sýndu það í upphafi fjórða leikhluta að þeir ætluðu ekki að gefa Keflvíkingum sætið í 8 liða úrslitum og minnkuðu muninn smám saman niður í 13 stig þegar þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum, 74-87. Bæði lið voru að taka afleitar ákvarðanir og ótrúlega léleg skot um miðbik fjórða leikhluta og ekki leið að löngu þar til Guðjón Skúlason tók leikhlé til þess að lesa yfir sínum mönnum. Þá hafði Keflavík aðeins skorað 2 stig á fyrstu fjórum mínútum leikhlutans.
Valsmenn náðu muninum á niður í 10 stig þegar um það bil fjórar mínútur voru eftir af leiknum en svo lítill hafði munurinn ekki verið síðan í upphafi fyrst aleikhlutan. Guðjón skúlason ætlaði ekki að bíða lengur og setti Sigurð Þorsteinsson og Gunnar Stefánsson inná völlinn fyrir minni spámenn sem höfðu ekki náð að halda aftur af sóknarleik Valsmanna. Valsmenn tóku leikhlé þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum og ennþá munaði 10 stigum, 82-92. Suttu seinna misstu Valsmenn Hörð Hreiðarsson útaf með fimm villur en hann hafði verið sá leikmaður sem tók af skarið fyrir Valsmenn í sókninni. Það virtist þó ekki hafa ikil áhrif þar sem Keflvíkingar voru ennþá að spila arfaslakan sóknarleik og Valsmenn voru því aðeins 9 stigum undir þegar Yngvi Gunnlaugsson tók leikhlé í þeirri von að kveikja í sínum mönnum fyrir lokamínúturnar, 86-95. Gunnar Stefánsson fór þó langleiðina með að tryggja sigur Keflvíkinga með laglegri þriggja stiga körfu þegar um það bil ein mínúta var eftir og þar með var munurinn kominn í 9 stig, 89-98, og of lítill tími til stefnu. Þegar flautað var 10 stiga sigur Keflvíkina staðfestur, 90-100.
Texti: Gísli Ólafsson




