Það voru Keflavíkurstúlkur sem komu, sáu og sigruðu í Hveragerði í gær þegar leikið var í A-riðli Iceland Express deildar kvenna. Hamarskonur gátu tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri en allt kom fyrir ekki. Hamar þarf því að bíða í rúma viku eftir næsta tækifæri til að landa titlinum.
Heimastúlkur voru með undirtökin í 1. leikhluta. Í upphafi var mikið jafnræði á með liðunum en staðan eftir 5 mínútna leik var 13-8 fyrir Hamar. Staðan að loknum 1. leikfjórðungi var 26-16.
Hamarsstúlkur voru heldur öruggar með sig í 2. fjórðungi og það var líkt og þær héldu að sigurinn kæmi af sjálfu sér eftir þessa byrjun. Annað kom á daginn. Keflavíkurstúlkur gerðu hvorki meira né minna en 39 stig á móti 16 og var staðan í hálfleik 42-55 fyrir Keflavík.
Adamshick hjá Keflavík fór hamförum í 2. leikhluta og var komin með 29 stig.
Keflavíkurstúlkur héldu áfram í seinni hálfleik þaðan sem frá var horfið og þegar um 3 mínútur voru eftir af 3. leikhluta var staðan 51-71 og virtust heimastúlkur ekki eiga svör við vel skipulögðum sóknarleik gestanna. Staðan fyrir lokaleikhlutann var 78-61 fyrir Keflavík.
Hamarsstúlkur komu heldur einbeittari til leiks í 4. leikhluta. Þær söxuðu á forrystu Keflavíkur og var staðan 78-82 eftir að Íris Ásgeirsdóttir (Hamar) setti þrist þegar um 3 mínútur lifðu leiks. Hamar fékk nokkur tækifæri til þess að komast nær Keflavík en eftir illa skipulagðan sóknarleik, tapaða bolta og ágætis varnarleik af hálfu Keflvíkinga, stóðu gestirnir uppi sem sigurvegarar og fyrsti tapleikur Hamars í deildinni í vetur staðreynd. Lokatölur voru 93-86 fyrir Keflavík.
Atkvæðamest hjá Keflavík var Jacquline Adamshick með 33 stig og 20 fráköst. Bryndís Guðmundsdóttir gerði 25 stig og var með 6 stoðsendingar. Pálína Gunnlaugsdóttir gerði 15 stig, 6 fráköst og 7 stoðsendingar. Marina Caran og Ingibjörg Jakobsdóttir gerðu 7 stig hvor og Birna Valgarðs gerði 6 stig.
Hjá Hamri var Jaleesa Butler atkvæðamest með 29 stig, 13 fráköst og 10 stoðsendingar. Kristrún Sigurjónsdóttir gerði 19 stig, Íris Ásgeirsdóttir gerði 14 stig og 8 fráköst. Guðbjörg Sverrisdóttir gerði 9 stig, Fanney Lind 7, Slavica Dimvoska 6 og Þórunn Bjarnadóttir 2.
Umfjöllun: Jakob F. Hansen





