HomeFréttirKeflavík stakk af í seinni hálfleik

Keflavík stakk af í seinni hálfleik

Haukar og Keflavík mættust í gærkvöld á Ásvöllum í 15. umferð Iceland Express deild kvenna. Haukar voru fyrir leikinn á 4. sæti með 12 stig en Keflavík í því öðru með 24 stig. Haukar eiga enn þá séns að ná KR stúlkum sem sitja í þriðja sæti deildarinnar en Hamar og Keflavík eru að stinga af.
Fyrsti leiklutinn var mjög jafn og munaði aldrei meira en 6 stigum á liðunum. Haukar höfðu þó forystuna að honum loknum 22-19.
 
Leikurinn hélt áfram að vera jafn í öðrum leihlutanum, en bæði lið voru að spila svæðisvörn sem orsakaði mikið af opnum þristum. Þegar um 2 og ½ min voru eftir af fyrri háfleiknum kom hins vegar góður kafli hjá Keflvíkingum og þær skoruðu 12 stig í röð og voru með forystu 28-47 í hálfleik.
Þessi munur virtist of mikill fyrir Haukastúlkur þó að þær hafi náð að koma muninum niður í 8 stig þegar 7 min voru eftir. Keflavík voru einfalldlega sterkari og unnu að lokum 53-74.
 
Stigahæstu leikmenn:
 
Haukar: Ragna Margrét Brynjarsdóttir 19 stig/13 fráköst, Katie Snodgrass 16 stig/14 fráköst, Guðrún Ósk Ámundadóttir og Íris Sverrisdóttir 6 stig hvor
 
Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 16 stig/7 stoðsendingar, Jacquline Adamshick 15 stig/12 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 15 stog, Birna Valgarðsdóttir 14 stig/7 fráköst

Mynd / Pálína Gunnlaugsdóttir var stigahæst Keflvíkinga gegn Haukum.

[email protected]

 
Fréttir
- Auglýsing -