Keflavík knúði fram oddaleik í einvígi sínu gegn Haukum í átta liða úrslitum Dominos deildar karla. Leikur liðanna í kvöld var æsispennandi og voru liðin jöfn á nánast öllum tölum framan af fjórða leikhluta.
Oddaleikur liðanna fer fram næstkomandi miðvikudag 28. mars kl 19:15. Leikurinn fer fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Ljóst er að stemmningin verður rosaleg og sérstaklega ef miðað er við stemmninguna í TM-höllinni í kvöld.
Umfjöllun um leikinn og viðtöl við leikmenn og þjálfara eru væntanleg á Karfan.is síðar í kvöld.
Úrslit kvöldsins:
Dominons deild karla:
Staðan í einvíginu 2-2




