KR jafnaði í kvöld einvígið gegn Keflavík í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna. Karfan TV ræddi við Hildi Sigurðardóttur leikmann KR og Jón Halldór Eðvaldsson þjálfara Keflavíkur að leik loknum. Staðan er 1-1 og liðin mætast aftur í Keflavík á föstudag.





