HomeFréttirKarfan TV: Erum að fá skipulagðan körfuboltafíkil

Karfan TV: Erum að fá skipulagðan körfuboltafíkil

 
Hlynur Bæringsson varð í vetur sænskur meistari með Sundsvall Dragons undir stjórn Peters Öqvist en Öqvist sat blaðamannafund KKÍ í dag þar sem hann ræddi við fjölmiðla og kynnti sínar áherslur. Hlynur var einnig viðstaddur fundinn og sagði að Íslendingar væru að fá skipulagðan körfuboltafíkil í Öqvist.
,,Ég held að menn verði ánægðir með hann og við þurfum að tileinka okkur nýjar aðferðir með nýjum þjálfara,“ var meðal þess sem Hlynur sagði í samtali við Karfan TV.
 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -