spot_img
HomeFréttirJúlíus Orri og Caldwell Cougars lágu gegn Barry

Júlíus Orri og Caldwell Cougars lágu gegn Barry

Júlíus Orri Ágústsson og Caldwell Cougars máttu þola tap í gærkvöldi fyrir Barry í bandaríska háskólaboltanum, 74-113.

Það sem af er tímabili hefur Caldwell unnið fjóra leiki og tapað fimm.

Á 8 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Júlíus tveimur stigum og frákasti.

Næsti leikur Caldwell er þann 17. desember gegn Southern Connecticut.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -