HomeFréttirJón Orri leggur skóna á hilluna

Jón Orri leggur skóna á hilluna

Miðherjinn Jón Orri Kristjánsson hefur ákveðið að leggja körfuboltaskóna endanlega á hilluna eftir þetta tímabil. Þetta þýðir að hann mun leika sinn síðasta leik á ferlinum hjá félaginu sem hann hóf að leika með næstkomandi fimmtudag. Þetta kemur fram á Facebook síðu ÍA í kvöld.

 

Jón Orri er uppalin hjá ÍA og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með félaginu. Hann hefur þess að auki leikið með ÍR, Þór Ak, KR og Stjörnunni áður en hann kom aftur á Akranes þar sem hann hefur leikið síðustu þrjú tímabil. 

 

Hann á að baki tvo Íslandsmeistaratitla með KR auk fjölda annarra stóra titla. Síðasti leikur Jóns Orra verður fyrir ÍA á fimmtudag þegar FSu kemur í heimsókn á Vesturgötuna. Í yfirlýsingu ÍA er skorað á Skagamenn að fjölmenna á leikinn og þakka leikmanninum fyrir sitt framlag. 

 

Leikurinn fer fram kl 19:15 annað kvöld en Skagamenn freista þess þar að ljúka tímabilinu í 1. deild karla með einum sigri en liðið er enn án sigurs eftir 23. leiki. Fyrstu deild karla lýkur á morgun með heilli umferð en nú þegar er ljóst að nágrannar ÍA, Skallagrímur er búið að tryggja sér toppsæti deildarinnar. Stöðuna í 1. deild karla má finna hér. 

 

 

Myndband af troðslu Jón Orra í leik með Stjörnunni má finna hér að neðan:

 

Fréttir
- Auglýsing -