Stjórn körfuknattleikssambands Íslands hefur valið Jón Arnór Stefánsson og Helenu Sverrisdóttur körfuboltamann og konu ársins 2009.
Helena Sverrisdóttir:
Haukar / TCU College
Bakvörður
21 árs
180 cm
Burðarás í liði TCU sem komst í úrslitakeppni háskólaboltans í Bandaríkjunum sl. vor. Lið hennar var jafnan í hópi topp 25 liða í landinu og er liðinu spáð velengni á keppnistímabilinu 2009-2010 ekki síst fyrir það að Helena leikur með liðinu
Valinn í 5-manna úrvalslið Mountain West riðilsins
Þrisvar valinn besti leikmaður vikunnar í Mountain West riðlinum ( 8. Des. 9. Feb. og 9 Mars)
Colliers International Classic Tournament MVP, verðmætasti leikmaður mótsins
Það sem af er þessu hausti er ljóst að Helena er enn að bæta sig og verður forvitnilegt að fylgjast með henni í framtíðinni
Utan vallar hefur Helena ávallt látið gott af sér leiða, hún er alltaf reiðubúin að gera það sem þarf til að auglýsa íslenskan kvennabolta og leggur mikið á sig til að leika fyrir Íslands hönd
Jón Arnór Stefánsson:
KR / Benetton Treviso og Granada
Bakvörður
27 ára
196 cm
Íslandsmeistari með KR
Besti leikmaður Íslandsmótsins
Lék með Benetton Treviso á Ítalíu í úrslitakeppninni sl. vor þar sem hann stóð sig mjög vel
Jón Arnór lék vel með íslenska landsliðinu sem m.a. vann góða sigra á Hollandi og Danmörku á árinu
Samdi við Granada til tveggja ára sem leikur í bestu deild Evrópu, ACB deildinni á Spáni. Lenti í erfiðum meiðslum en hefur með miklum dugnaði og aga komist aftur á fjalirnar mun fyrr en áætlað var og hefur leikið vel með liði sínu í sl. leikjum. Skoraði m.a. 8 stig í góðum sigri liðsins sl. laugardag
Jón Arnór og Helena hafa sýnt á síðustu árum að þau eru í fremstu röð íslenskra íþróttamanna og árangur þeirra í hinum stóra heimi körfuboltans sýnir það mjög skýrt.