Í fjórða skiptið á fimm árum er Jón Halldór Eðvaldsson mættur í Laugardalshöll og mun stýra Keflavíkurkonum sem leika til Poweradebikarúrslita gegn KR kl. 13:30 í dag. Menn hafa kallað hann John Silver, spyrjum að leikslokum.
,,Ég er búinn að reyna allt, núna ætla ég bara að leyfa stelpunum að stjórna þessu,” sagði Jón Halldór léttur í bragði en gerðist svo alvarlegur. ,,Við höfum undirbúið okkur á fullu og ég legg leikinn ekki mikið öðruvísi upp heldur en gengur og gerist en vissulega eru alltaf meiri læti í kringum þennan leik. Þetta er leikur þar sem hugarfarið þarf að vera rétt stillt og við erum að vinna í því.”
Liðin hafa unnið sinn hvorn góðan sigurinn á toppliði Hamars undanfarið svo eru þau að mæta í bikarúrslit með sjálfstraustið í botni?
,,Það er fínt sjálfstraust í liðinu mínu og hefur verið í allan vetur þrátt fyrir smá dýfu í desember. Að halda út heilt mót í blússandi gangi er mjög erfitt en sjálfstraustið hefur ekkert minnkað. Ef KR er ekki í skýjunum núna eftir sigurinn á Hamri þá er eitthvað að, við erum í skýjunum svo það má segja að Keflavík, KR og Hamar séu mjög áþekk.”
Hvernig finnst þér Keflavík og KR mætast, mann fyrir mann?
,,Liðin match-a ágætlega, sérstaklega eftir að Signý kom inn í þetta aftur þá eru liðin mjög áþekk. Ef þú spyrðir mig og ég væri óháður aðili sem ætti að segja til um hvort liðið myndi vinna þennan bikarúrslitaleik þá myndi ég bara segja pass. Þetta yrði bara þrítrygging en ef við náum að stilla hausinn á okkur, undirbúa okkur rétt og leikum okkar leik í dag þá getur eitthvað stórkostlegt gerst,” sagði Jón en hefur hans helsta verkefni þá verið að losa sína leikmenn við hugsanir um síðustu ferðir þeirra í Höllina?
,,Nei nei, einn virtasti þjálfarinn í íslenskum körfubolta fyrr og síðar, Sigurður Ingimundarson, sagði við mig þegar ég var nýbyrjaður í þessu að maður þyrfti að tapa helvíti mörgum leikjum svo maður kynni að vinna. Ég held að það sé bara alveg rétt hjá honum og maður eflist við að tapa. Þó er það ekkert á dagskrá að tapa um helgina og ég er alveg töluvert rólegri yfir þessu heldur en fólk gerir sér grein fyrir.”
Poweradebikarúrslit í Höllinni í dag
13:30 KR-Keflavík í kvennaflokki
16:00 KR-Grindavík í karlaflokki
Miðasala á www.midi.is





