Jón Axel Guðmundsson leikmaður Davidson og Grindvíkingur með meiru fylgist heldur betur með Dominos deild karla þrátt fyrir veru sína í Bandarískum háskóla.
Hann hefur látið skoðun sína á Grindavíkurliðinu í ljós á Twitter reglulega og er ansi virkur á forritinu. Meðan á leik Grindavíkur og Vals stóð tísti hann að nú væri kominn tími á að kaupa farmiða handa Rashad Whack erlendum leikmanni liðsins.
Jón Axel bætir við að það sé það besta í stöðunni að semja aftur við Lewis Clinch sem lék einnig með liðinu á síðasta tímabili.
Hvort sem forsvarsmenn Grindavíkur hlusti á Jón Axel eða ekki er ljóst að Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur er farinn að skoða möguleikana. Hann staðfesti í viðtali við Karfan.is í kvöld að hann væri farinn að líta í kringum sig varðandi erlendan leikmann en ekkert væri komið á hreint.
Tístið má finna hér að neðan en það hefur heldur betur verið tíðindamikilir dagar hjá Jón Axeli síðustu daga.
Jæja Grindavík komið tími til að kaupa farmiða handa kananum og vera gáfaðir og semja bara við @LewClinch sem allir vita hvað getur, kom okkur í finals í fyrra vetur @korfuboltakvold #korfubolti _x1f64f__x1f3fb__x1f64f__x1f3fb_
— Jón Axel (@Jaxelinn) December 7, 2017




