spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaJón Axel og Fortitudo Bologna töpuðu gegn Tortona

Jón Axel og Fortitudo Bologna töpuðu gegn Tortona

Jón Axel Guðmundsson og Fortitudo Bologna máttu þola tap fyrir Tortona í kvöld í úrvalsdeildinni á Ítalíu, 74-64.

Eftir leikinn eru Bologna í 16. sæti deildarinnar með tvo sigra og átta töp það sem af er tímabili.

Á 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 3 stigum, 5 fráköstum og 2 stoðsendingum.

Næsti leikur Jóns Axels og Bologna er þann 13. desember gegn Trieste.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -