Jón Axel Guðmundsson og Crailsheim Merlins lögðu Heidelberg í kvöld í þýsku úrvalsdeildinni, 87-72.
Crailsheim eru í 9. sæti deildarinnar eftir leikinn með 50% sigurhlutfall það sem af er tímabili, 13 sigra og 13 töp.
Á rúmum 10 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel fjórum stigum, frákasti og stoðsendingu.
Næsti leikur Jóns Axels og Crailsheim er þann 12. apríl gegn Braunschweig.