spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaJón Axel öflugur gegn toppliðinu

Jón Axel öflugur gegn toppliðinu

Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante lögðu topplið Leyma Coruna í Leb Oro deildinni á Spáni, 84-74.

Á tæpum 27 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 14 stigum, 5 fráköstum, 5 stoðsendingum og stolnum bolta.

Eftir leikinn eru Alicante í 7. sæti deildarinnar með 19 sigra.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -