Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante lögðu Acunsa GBC í kvöld með minnsta mun mögulegum í Leb Oro deildinni á Spáni, 71-70.
Á tæpum 30 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 14 stigum, 3 fráköstum og stoðsendingu.
Eftir leikinn eru Alicante í 6. sæti deildarinnar með fjóra sigra og þrjú töp það sem af er tímabili.