spot_img
HomeFréttirJón Arnór líklega ekki með fyrir jól

Jón Arnór líklega ekki með fyrir jól

Jón Arnór Stefánsson segir að hann búist ekki við því að vera með KR í stórleik umferðarinnar gegn Stjörnunni. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. 

 

Sögusagnir hafa verið um að Jón Arnór myndi leika með KR í stórleiknum gegn Stjörnunni annað kvöld en sagði Jón Arnór í fréttum kvöldsins að það væri ólíklegt. 

 

Jón Arnór kom til KR í sumar frá Valencia á Spáni. Hann fór í aðgerð á hné eftir löng meiðsli í haust og var ákveðin í að leika fyrir KR á árinu 2016 en nú eru allar líkur á að svo verði ekki. 

 

KR heimsækir Stjörnuna í 11 umferð Dominos deildar karla annað kvöld klukkan 20 en liðin eru jöfn að stigum með 16 stig. Leikurinn er sá síðasta í deildinni fyrir jólafrí og því mun liðið sem vinnur leiða deildina um hátíðarnar. 

 

Nánar verður fjallað um leikinn á morgun. 

 

Mynd / [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -