Jón Arnór Stefánsson leikmaður KR og besti leikmaður Dominos deildarinnar á síðustu leiktíð mun líklega vera klár í slaginn þegar undanúrslitaeinvígi KR og Hauka hefst eftir páska. Þetta greinir Mbl.is frá í gær.
Jón sem tognaði á nára í þriðja leik liðsins gegn Njarðvík hefur haft góðan tíma til að ná sér af meiðslunum en síðasti leikurinn fór fram 22. mars. Fyrsti leikurinn gegn Haukum fer fram þann 5. apríl næstkomandi.
Samkvæmt frétt Mbl hefur Jón æft einn síðustu dagana og meiðslin virðist ekki vera eins alvarleg og óttast var í fyrstu. Jón ætti því að vera klár í fyrsta leik liðsins í undanúrslitunum.
KR fékk auðvitað góðan liðsstyrk á dögunum þegar Helgi Magnússon tók fram skóna að nýju og ætlar að leika með liðinu út tímabilið. Helgi er auðvitað fyrrum landsliðsmaður og lykilmaður í liði KR svo um góðan liðsstyrk er að ræða.




