spot_img
HomeFréttirJóhannes eftir að Ísland fékk bronsverðlaunin afhent "Maður er auðvitað ánægður með...

Jóhannes eftir að Ísland fékk bronsverðlaunin afhent “Maður er auðvitað ánægður með þriðja sætið”

Undir 16 ára drengjalið Íslands hafnaði í þriðja sæti Norðurlandamótsins í Kisakallio. Mótið unnu heimamenn í Finnlandi og í öðru sæti var Eistland. Lokaniðurstaðan varð ljós eftir að leik Svíþjóð og Íslands var aflýst nú í morgun, en það gerði það að verkum að Danmörk og Ísland voru jöfn að sigrum, en vegna eins stigs sigurs Íslands á Danmörku í gær, höfnuðu þeir fyrir ofan.

Karfan spjallaði við Jóhannes Ómarsson leikmann liðsins eftir verðlaunaafhendingu í Kisakallio.

Fréttir
- Auglýsing -