spot_img
HomeFréttirJóhann og Petrúnella best í Grindavík

Jóhann og Petrúnella best í Grindavík

Lokahóf Körfuknattleiksdeildar Grindavíkur fór fram í Eldborgarsal í Svartsengi síðastliðið þriðjudagskvöld þar sem þau Jóhann Árni Ólafsson og Petrúnella Skúladóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka félagsins. Þau skötuhjú voru lykilmenn í Grindavíkurliðunum þetta tímabilið, gular sem nýliðar og gerðu heiðarlega tilraun til þess að komast í úrslitakeppnina og gulir tóku þann stóra. Hér að neðan fer listi yfir þá leikmenn sem Grindvíkingar verðlaunuðu á sínu hófi:
 
Meistaraflokkur karla:
 
Besti leikmaður: Jóhann Árni Ólafsson
Mikilvægasti leikmaður: Þorleifur Ólafsson
Besti ungi leikmaðurinn: Davíð Ingi Bustion
 
Meistaraflokkur kvenna:
 
Besti leikmaður: Petrúnella Skúladóttir
Besti varnarmaður: Berglind Anna Magnúsdóttir
Efnilegasti leikmaðurinn: Jeannae Lois Figeroa Sicat
Mestu framfarir: Jóhanna Styrmisdóttir
 
Myndir/ Þorsteinn Gunnar Kristjánsson – Verðlaunahafar meistaraflokka Grindavíkur 2013
  
Fréttir
- Auglýsing -