spot_img
HomeFréttirJóhann glímir við erfið meiðsli

Jóhann glímir við erfið meiðsli

13:57 

{mosimage}

(Jóhann í leik með Njarðvíkingum)

Jóhann Árni Ólafsson hefur ekki tekið þátt í undirbúningstímabilinu með Íslandsmeisturum Njarðvíkinga í sumar. Jóhann fór að finna fyrir verk í náranum í febrúar fyrr á þessu ári og eftir Evrópukeppnina í sumar með U 20 ára landsliðinu hefur hann ekki stundað körfuknattleik. 

„Ég er ekki búinn að hreyfa mig í tvo mánuði, í vetur var ég í sjúkraþjálfun eftir að hafa fundið fyrir verkjum í náranum en ég hélt meiðslunum þá í skefjum og kláraði tímabilið með Njarðvík,“ sagði Jóhann í samtali við Víkurfréttir. Að loknu leiktímabilinu hjá Njarðvík tók við Evrópukeppnin með U 20 ára landsliðinu þar sem leiknir voru einir átta leikir á tíu dögum og það gerði endanlega útslagið hjá Jóhanni. „Þetta eru nárinn, mjaðmir og neðra bak sem eru að hrjá mig og stundum leiða verkirnir upp í maga,“ sagði Jóhann sem fer í myndatöku á morgun þar sem hann vonast til þess að fá nánari skýringu á meiðslum sínum.  

 

„Ég get ekki beðið eftir því að komast aftur í körfuna því ég hef aldrei áður á ferlinum átt við meiðsli að stríða og það var erfitt að sitja uppi í stúku og fylgjast með strákunum spila í Allt hreint mótinu á dögunum,“ sagði Jóhann sem gerði 9,3 stig að meðaltali í leik síðasta vetur með Njarðvíkingum. Víst þykir að Jóhann muni missa af fyrstu umferðunum í Iceland Express deildinni sem hefst þann 19. október næstkomandi.

 

Frétt af www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -