spot_img
HomeFréttirJana í háskólaboltann

Jana í háskólaboltann

Jana Falsdóttir leikmaður Njarðvíkur í Subway deild kvenna mun halda vestur um haf að tímabili loknu og ganga til liðs við California State í Fullerton. Staðfestir ANSAAthletics þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Jana er 18 ára og að upplagi úr Keflavík, en í meistaraflokki hefur hún spilað fyrir Stjörnuna, Hauka og Njarðvík, en á yfirstandandi tímabili hefur hún verið með betri leikmönnum Subway deildarinnar. Þá hefur hún á síðustu árum verið lykilleikmaður í yngri landsliðum Íslands og nú fyrir áramót lék hún sinn fyrsta leik fyrir A landsliðið.

Cal State Fullerton er í fyrstu deild bandaríska háskólaboltans og er hann staðsettur rétt fyrir utan Los Angeles. Liðið leikur í Big West deild háskólaboltans.

Fréttir
- Auglýsing -