spot_img
HomeFréttirJakob og Helena körfuknattleiksfólk ársins 2011

Jakob og Helena körfuknattleiksfólk ársins 2011

Jakob Sigurðarson og Helena Sverrisdóttir hafa verið valin körfuknattleiksmaður og körfuknattleikskona ársins 2011 af KKÍ. Þetta er í fyrsta sinn sem Jakob er valinn en Helena hefur nú alls sjö sinnum verð valin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Körfuknattleikssambandi Íslands.
Körfuknattleikskona og maður ársins 2011 voru valin af stjórn, starfsmönnum, afreksnefnd og landsliðþjálfurum ( yngri landsliða og A-landsliða) KKÍ en samtals voru 26 einstaklingar sem komu að valinu.
 
 
Körfuknattleikskona ársins 2011:
 
1.sæti Helena Sverrisdóttir
2.sæti Margrét Kara Sturludóttir
3.sæti Pálína Gunnlaugsdóttir
 
 
Aðrar sem fengu atkvæði eru í stafrófsröð: Birna Valgarðsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og Hildur Sigurðardóttir
 
 
Körfuknattleiksmaður ársins 2011:
 
1.sæti Jakob Sigurðarson
2.sæti Hlynur Bæringsson
3.sæti Jón Arnór Stefánsson
 
 
Aðrir sem fengu atkvæði eru í stafrófsröð: Haukur Helgi Pálsson, Logi Gunnarsson og Pavel Ermolinski
 
 
Jakob Sigurðarson, Sundsvall Svíþjóð
 
Jakob Sigurðarson er á sínu þriðja ári með Sundsvall en hann hefur leikið frábærlega með liði sínu öll árin. Keppnistímabilið 2009-2010 var hann m.a. valinn besti leikmaður deildarinnar af netmiðlinum Eurobasket.com og á síðustu leiktíð átti hann stóran þátt í að Sundsvall varð sænskur meistari í maí 2011. Jakob tryggði liðinu oddaleik með ævintýralegri 3-stiga körfu og í úrslitaleiknum skoraði hann 31 stig og var stigahæsti leikmaður Sundsvall sem fagnaði meistaratitlinum á heimavelli.
 
 
Tölfræði Jakobs tímabilið 2010-2011:
16.1 stig á leik
3.4 fráköst á leik
3.7 stoð á leik
 
 
Tölfræði Jakobs það sem af er tímabilinu 2011-2012
18.7 stig á leik
3.1 fráköst á leik
3.0 stoð á leik
 
 
Jakob lék með íslenska landsliðinu á Norðurlandamótinu sem fram fór í Sundsvall í júlí sl og var valinn í úrvalslið mótsins en Jakob lék mjög vel með liðinu. Einnig lék Jakob með landsliðinu tvo æfingaleiki gegn Kínverjum í Kína í september sl.
 
 
Jakob komst í frægðarhöll háskólaliðsins Birmingham Southern sem hann lék með í fjögur á árunum 2001 – 2005. Sú athöfn fór fram 11. nóvember sl.
 
 
Ferill Jakobs hjá skólanum var einkar glæsilegur. Hann er á topplistum í öllum tölfræðiþáttum í sögu skólans og má þar nefna sem dæmi:
 
nr. 1 yfir flestar mínútur spilaðar – 3496
nr. 1 yfir oftast í byrjunarliði – 105 (jafn öðrum leikmanni)
nr. 4 yfir Stigaskor á ferli – 1468 stig
nr. 3 yfir þriggja stiga körfur skoraðar – 223
nr. 7 yfir flestar stoðsendingar – 283
 
 
Þá hefur Jakob jafnframt verið tilnefndur sem einn af þremur sem koma til greina sem íþróttamaður ársins 2011 í Sundsvall en valið verður kunngjört í febrúar 2012.
 
 
 
Helena Sverrisdóttir, Good Angels Kosice, Slóvakíu
 
Helena Sverrisdóttir lék fjögur ár með TCU háskólanum sem er einn af stærri skólum landsins í háskólakörfuboltanum.
 
 
Tölfræði Helenu með TCU 2011:
15.7 stig á leik
5.8 fráköst á leik
4.5 stoðs. á leik
 
 
Ágrip af síðasta tímabili Helenu með TCU 2010-2011:
 
2010-11 (SENIOR)
 
• Wooden Award Watch List
• Naismith Watch List
• Two-Time MWC Player of the Week (Dec. 13 & Feb. 28)
• Preseason First Team All-Conference
• Preseason MWC Player of the Year
• Paradise Jam All-Tournament Team
• Lowe’s Senior CLASS Award Candidate
• MWC All-Tournament Team
 
 
 
Helena útskrifaðist frá TCU háskólanum síðasta sumar. Hún fór í nýliðaval WNBA deildarinnar en var ekki valin en gerði fljótlega samning við Good Angels Kosice frá Slóvakíu en liðið er langsterkasta lið Slóvakíu og leikur í Meistaradeild Evrópu.
 
 
Helena er fyrsta konan frá Íslandi sem spilar í Meistaradeild Evrópu.
 
 
Lið hennar er á toppi slóvakísku deildarinnar en þar hefur Helena leikið mjög vel. Hún hefur mest skorað 28 stig í leik fyrir sitt lið.
 
 
Tölfræði Helenu 2011-2012 í slóvakísku deildinni:
11.1 stig á leik
2.6 fráköst á leik
 
 
Tölfræði Helenu í Meistaradeild Evrópu:
2 stig á leik
2 fráköst á leik
 
 
www.kki.is   
Fréttir
- Auglýsing -