spot_img
HomeFréttirJakob fékk 34 í framlagseinkunn fyrir leikinn í gær

Jakob fékk 34 í framlagseinkunn fyrir leikinn í gær

12:27

{mosimage}

Jakob Örn Sigurðarson átti stórleik í gærkvöldi í 91-77 sigri íslenska karlalandsliðsins á Austurríki í lokaleik liðsins í b-deild Evrópukeppninnar. Jakob endaði leikinn með 21 stig, 10 stoðsendingar og 7 fráköst, hann hitti úr 58% skota sinna og tapaði ekki einum einasta bolta á þeim 35 mínútum og 47 sekúndum sem hann spilaði í leiknum.

Jakob náði með þessarri frábæru frammistöðu framlagseinkunn upp á 34 sem er besta frammstaða íslensks leikmanns í öllum átta leikjum íslenska liðsins í b-deildinni. Bestu frammistöðuna fyrir leikinn í gær átti Hlynur Bæringsson strax í fyrsta leiknum á móti Finnum 6. september 2006 en hann fékk þá 27 framlagsstig fyrir 13 stig, 15 fráköst, 4 stoðsendingar, 2 stolna bolta og 2 varin skot. Þriðji á listanum er síðan Brenton Birmingham sem fékk 25 stig í sigurleik á móti Lúxemborg 13. september 2006 en hann var þá með 24 stig, 3 fráköst, 3 stoðsendingar og 64% skotnýtingu.

Jakob náði í gær einnig besta árangri íslensks leikmanns í b-deildinni með því að skora fimm þriggja stiga körfur og gefa 10 stoðsendingar. Jakob var einn fjögurra leikmanna sem hafði skorað fjóra þrista í einum leik og átta stoðsendingar hans gegn Lúxemborg 13.september 2006 var það mesta sem íslenskur leikmaður hafði náð í einum leik fyrir leikinn á móti Austurríki í gærkvöldi.

{mosimage}

Tölfræði Jakobs eftir leikhlutum gegn Austurríki í gær:

1. leikhluti – 7 stig, 3 fráköst, 0 stoðsendingar, hitti úr 3 af 4 skotum (1 af 2 í 3ja)

2. leikhluti – 5 stig, 3 fráköst, 3 stoðsendingar, hitti úr 1 af 4 skotum (1 af 2 í 3ja)

3. leikhluti – 6 stig, 1 fráköst, 2 stoðsendingar, hitti úr 2 af 2 skotum (2 af 2 í 3ja)

4. leikhluti – 3 stig, 0 fráköst, 5 stoðsendingar, hitti úr 1 af 2 skotum (1 af 2 í 3ja)

Þetta var einnig í fyrsta sinn sem Jakob brýtur tuttugu stiga múrinn í landsleik en hann hafði mest áður skorað 19 stig í tvígang, í vináttulandsleik gegn Ungverjum í Szombathely 29.ágúst 2004 og gegn Dönum á Norðurlandamótinu í Tampere 5. ágúst 2006.

 

www.kki.is

 

Myndir: [email protected]

 

Fréttir
- Auglýsing -