spot_img
HomeFréttirJakob: Bara að negla þessu

Jakob: Bara að negla þessu

23:55

{mosimage}
(Jakob var óstöðvandi í leiknum)

Það virtist ekki skipta máli hver fékk frítt skot í kvöld allt fór ofaní. Jakob Sigurðarson skoraði 21 stig og skoraði hann fimm þriggja-stiga körfur í átta tilraunum. Jakob hefur verið funheitur að undanförnu og er leikstjórnandinn að sýna íslendingum sínar bestu hliðar þessa dagana. Jakob sagði eftir leik að liðið væri að spila vel saman og þegar menn fengu skot frí skot ættu þeir bara að negla þeim.

,,Í upphafi var boltinn ekki að detta en þegar leið á leikinn þá fóru þau að fara niður. Við spiluðum vel saman og fundu fríu mennina og þegar menn eru fríir af hverju ekki að negla þessu boltum.”

Ísland skoraði alls 17 þriggja-stiga körfur og 15 tveggja-stiga.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -