HomeBónus deildinBónus deild kvennaJafntefli hjá Stjörnunni gegn Norrköping Dolphins í Svíþjóð

Jafntefli hjá Stjörnunni gegn Norrköping Dolphins í Svíþjóð

Kvennalið Stjörnunnar gerði jafntefli, 79–79, gegn sænska liðinu Norrköping Dolphins í æfingaleik í Stadium Arena í dag. Liðin ákváðu að framlengja ekki að venjulegum leiktíma loknum.

Leikurinn var afar sveiflukenndur og spennandi allt til loka. Stjarnan hafði frumkvæðið eftir fyrsta leikhluta, 15–16, en sænska liðið svaraði fyrir sig í öðrum leikhluta og leiddi í hálfleik, 38–36. Eftir hnífjafnan þriðja leikhluta (58–60) tryggðu heimakonur sér jafntefli á lokakaflanum (21–19).

Í liði Stjörnunnar fór Diljá Lárusdóttir mikinn og var stigahæst með hvorki meira né minna en 37 stig. Dyer skilaði sömuleiðis flottum leik með 19 stig og 10 fráköst, en Eva Elíasdóttir bætti við 13 stigum.

Í gær lék Stjarnan gegn Rig Haga og fór með sigur af hólmi, 96-68, en engin tölfræði er aðgengileg úr þeim leik.

Fréttir
- Auglýsing -