spot_img
HomeFréttirIvory Crawford: Ætluðum að verða ákafari í vörninni

Ivory Crawford: Ætluðum að verða ákafari í vörninni

Ivory Crawford leikmaður Breiðabliks eftir sigur gegn Haukum í Maltbikar kvenna

 

Hvað vann leikinn í kvöld?

Þolinmæði, mikil þolinmæði vann þennan leik. Liðið ræddi það fyrr í vikunni að vörnin þyrfti að batna, það væri stærsta markmiðið fyrir þennan leik og það sem eftir lifði tímabils. Á seinustu æfingum höfðum við sýnt fram á að við ætluðum að verða ákafari í vörninni og þetta snýst allt um þá skuldbindingu. Það var munurinn í kvöld.

Þið takmörkuðuð Cherise Daniel nokkuð vel, hún skoraði einungis 13 stig í leiknum. Hvernig vörðust þið gegn henni? Var þetta liðsátak?

Við spiluðum góða hjálparvörn og töluðum saman. Allar voru skuldbundnar, allur bekkurinn var sífellt að minna okkur á hvað við ætluðum að gera og vera þolinmóðar.

Þið fáið núna næstum tvær vikur í hlé, hvað verður gert í fríinu?

Höldum áfram að æfa. Við ætlum að halda áfram að vinna í vörninni og allar ætla að sinna sínum einstaklingsbundnu hlutum sem að þau vilja gera betur. Ég er strax orðin spennt fyrir því að undirbúa mig fyrir næsta leik. Engir frídagar!

 

Fréttir
- Auglýsing -