HomeFréttirÍvar: Hittum bara ekki neitt!

Ívar: Hittum bara ekki neitt!

 

Ívar Ásgríms var pollrólegur þrátt fyrir tap:

 

Þetta hafðist ekki í þessum leik en mér fannst þitt lið í raun bara betra að öllu leyti í leiknum fyrir utan skotnýtinguna.

 

Já, ég held að það sé bara nákvæmlega niðurstaðan úr þessum leik. Ég fer ekkert óánægður heim eftir þennan leik. Mér fannst vörnin okkar alveg frábær í kvöld, ÍR-ingar voru að ströggla við að finna skot.

 

Einmitt, allan leikinn fyrir utan kannski fyrsta leikhlutann?

 

Já, við vorum vissulega ekki góðir í fyrsta leikhluta. En mennirnir af bekknum, Hilmar Péturs, Hjálmar, Breki og Arnór, komu inn á og kveiktu í okkur með baráttu. Sóknin var kannski ekki alveg nógu góð á þeim tímapunkti en við hittum rosalega illa úr galopnum færum hvað eftir annað. Við höfum talað um það að ef við töpum og erum ekki að hitta en við leggjum okkar fram samt sem áður þá verður bara að hafa það þó við töpum. Þetta var bara akkúrat þannig í kvöld.

 

Jájá og kannski lítið hægt að gera við þessu, en menn voru kannski svolítið spenntir?

 

Jájá…við óðum í færum og mér fannst varnarleikurinn stórkostlegur. Við vorum mjög slakir í fyrsta leikhluta en komum sterkir til baka. Þetta var einn af þessum leikjum þar sem skotin vildu ekki detta. Bara í fjórða leikhluta veit ég ekki hvað við fengum marga sénsa til að klára þetta. Kannski má segja að við vorum að tímabili að taka ekki alveg réttu skotin í fjórða, Haukur tók til dæmis á tímabili svolítið ,,forsuð“ skot en hafði verið mjög góður fram að því. En heilt yfir fannst mér við vera sterkara liðið og við förum ekkert heim niðurlútir, við vitum alveg hvað við getum.

 

Einmitt, en hefuru einhverjar áhyggjur af því að spennustigið verið eitthvað til trafala gegn Val í síðustu umferðinni þar sem deildarmeistaratitillinn verður í húfi?

 

Valsmenn hafa verið að spila vel og eru með hörku lið. Þeir koma pressulausir og hafa ekki að miklu að keppa en við vitum að það getur verið erfitt að spila gegn svoleiðis liði. Ef við spilum þessa vörn sem við vorum að spila í kvöld þá löndum við sigri en við þurfum að leggja okkur fram til þess. Ég get því ekki sagt að ég hafi miklar áhyggjur – það væri kannski annað ef við hefðum verið að ströggla í þessum leik en mér fannst við ekkert vera að gera það. Við vorum að gera rétta hluti, allir lögðu sig fram þannig að ég er bara bjartsýnn.

 

Að lokum, liggur fyrir hvenær Kári Jóns verður tilbúinn í slaginn?

 

Hann fer aftur í myndatöku í fyrramálið, við höldum að hann þurfi kannski viku eftir það, svo hann verður klár í úrslitakeppnina.  Hann getur byrjað að æfa með okkur í næstu viku. Hann er að æfa sjálfur á fullu og kemur til baka í gríðarlega góðu formi og úthvíldur. Hann bætist þá aftur við þetta sterka lið okkar og það er bara jákvætt.

 

Viðtal / Kári Viðarsson

Fréttir
- Auglýsing -