Undanúrslitaeinvígi KR og Hauka hefst þann 5. apríl næstkomandi með leik í DB Schenker Höllinni í Hafnarfirði. KR kláraði sitt einvígi gegn Njarðvík 3-0 og hefur því fengið þónokkra daga í frí. Haukar fóru hinsvegar í oddaleik gegn Keflavík, en sigruðu að lokum 3-2. Þrátt fyrir það gefa páskarnir Haukum nokkra auka daga í frí, þar sem ekkert er leikið yfir helgina.
Þjálfari Hauka, Ívar Ásgrímsson, er eins og frægt er orðið mikill áhugamaður um skíði. Eftir misjafnt gengi Haukana á síðasta tímabili fór hann í skíðaferð undir lok tímabils, kom til baka og liðinu fór að ganga betur. Því alveg við hæfi að hann nýti stund milli stríða nú til þess að skella sér í brekkuna. Hvar annarstaðar heldur en einmitt á fjallinu Tindastól, en ef að Haukar fara áfram úr undanúrslitunum munu þeir mæta annaðhvort ÍR eða Tindastól í úrslitum um þann stóra.
Líkt og færsla Sigríðar Ingu Viggósdóttur staðfestir hér fyrir neðan:
@ivarasgrimsson sækir sér að sjálfsögðu orku í Skagafjörð fyrir komandi átök. #skíðar #tindastoll #skagafjörður #haukar #korfubolti pic.twitter.com/QuTBm0ZzHl
— Sigridur Inga Viggós (@Siviggos) March 31, 2018



