KKÍ varð við ósk Arnars samkvæmt frétt félagsins og þakkar honum frábær störf fyrir íslenska landsliðið á undanförnum árum og óskar KKÍ honum alls hins besta í sínum störfum í vetur.
Framundan hjá liðinu eru æfingar í lok maí og í júní og svo Evrópukeppni FIBA í A-deild U20 landsliða en mótið ferm fram í Chemnitz í Þýskalandi dagana 14.-22. júlí. Þetta er í annað sinn sem Ísland á lið í A-deild U20 liða en á síðasta ári hafnaði Ísland í 8. sæti deildarinnar af 16 liðum.




